„Auðvitað hafa íslenskir tónlistarmenn notað búninga, aðrir hafa notað grafík og sumir hafa jafnvel dansað. En ég veit ekki um neinn sem hefur gert þetta allt saman í einu. Þannig að því leytinu er ég að fara að rassskella íslenska tónlistarbransann,“ segir poppstjarnan Páll Óskar um stórtónleika sína.