„Það er erfitt að lýsa þessum tilfinningum, að geta ekki eignast barn. Þetta er djúp innri þrá,“ segir formaður Tilveru, samtaka um ófrjósemi. Á morgun kl. 18 stendur Tilvera fyrir gjörningi til að vekja athygli á málefninu þar sem fólk gengur með tóma barnavagna í kringum Reykjavíkurtjörn.