„Ég komst yfir skömmina með nauðungarvistunina og geðdeildina eftir þriðju maníuna,“ segir Kristinn Rúnar Kristinsson sem vill sjá nauðungarvistunum fækkað. Of algengt sé að úrræðinu sé beitt í heilbrigðiskerfinu. Hann segir það hafa verið stórt og mikilvægt skref að komast yfir skömmina.