„Ástandið er svart,“ segir María Helga Guðmundsdóttir formaður Samtakanna '78 um atburði síðustu vikna í Tsjetsjeníu þar sem gróf mannréttindabrot gegn hommum hafa verið tilkynnt. Í dag boða samtökin til mótmæla fyrir utan rússneska sendiráðið vegna atburðanna.