Á föstudag fór fram lokahnykkur í inntökuprófum fyrir kvikmyndina Víti í Vestmannaeyjum. Þá kepptu 28 krakkar á fótboltamóti en 10 þeirra fá stærstu hlutverkin í myndinni. Gunnar Helgason höfundur samnefndrar bókar segir krakkana ótrúlega hæfileikaríka og ekki síst í fótbolta. mbl.is kíkti á mótið.