„Þetta efni á vel við núna af því að mér finnst við vera að upplifa tíma núna þar sem við erum komin inn í vísindaskáldskapinn. Allir þessir ótrúlegu hlutir eru farnir að gerast og okkur er hætt að finnast þeir eitthvað sérstaklega ótrúlegir,“ segir tónlistarmaðurinn Úlfur Eldjárn um viðfangsefni plötunnar sinnar.