Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis samþykkti einróma á fundi í morgun að kalla eftir öllum upplýsingum sem til eru um væntanlega kaupendur á hlut í Arion banka frá Fjármálaeftirlitinu. Formaður nefndarinnar segir mikilvægt að allar upplýsingar liggi fyrir um eigendur banka.