58 fleiri nauðgunarmál komu inn á borð til Stígamóta á árinu 2016 en 2015. Mikil aukning er á tilkynntum hópnauðgunum og lyfjanauðgunum. „Það er nærtækt að álykta að nauðgunarfaraldur hafi átt sér stað,“ segir talskona Stígamóta. Þá hafi átak samtakanna gert fólki auðveldara að stíga fram.