X-M mælist með meira en X-B

Niðurstöður skoðanakönnunar fyrir Morgunblaðið um fylgi stjórnmálaflokkanna.
Niðurstöður skoðanakönnunar fyrir Morgunblaðið um fylgi stjórnmálaflokkanna.

Sjálfstæðisflokkurinn tapar þriðjungi þingmanna sinna samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið dagana 2. til 4. október. Flokkurinn nýtur nú stuðnings tæplega 21% kjósenda og fengi 14 þingmenn kjörna í stað 21.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð er langstærsti flokkurinn. Nýtur hún stuðnings 28,2% kjósenda, sem gefur 20 þingmenn. Þetta er veruleg fylgisaukning frá kosningunum 2016 þegar flokkurinn fékk tæp 16% atkvæða og 10 þingmenn. Fylgi flokksins hefur þó lítillega dalað frá síðustu könnun Félagsvísindastofnunar.

Fylgi flokkanna samkvæmt könnuninni 2.-4. október.
Fylgi flokkanna samkvæmt könnuninni 2.-4. október.


Þá sætir það tíðindum í könnuninni að Samfylkingin bætir við sig talsverðu fylgi og er orðin þriðji stærsti flokkurinn. Fengi hún um 11% atkvæða og sjö þingmenn, en hún hefur nú aðeins þrjá menn á þingi og fékk 7,5% atkvæða í kosningunum í fyrra.

Flokkur fólksins, Miðflokkurinn og Píratar eru nánast jafn stórir með um 9% fylgi og fengju hver sex þingmenn kjörna, að því er fram kemur í umfjöllun um könnunina í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert