„Líður eins og ég hafi spilað þokkalegan leik en þó tapað honum“

Guðmundur Páll Jónsson.
Guðmundur Páll Jónsson. mbl.is

Guðmundur Páll Jónsson, oddviti framsóknarmanna á Akranesi, segir að sér líði eins og hann hafi spilað þokkalegan leik en þó tapað honum. „Auðvitað vonaðist maður til þess að geta snúið þeirri stöðu sem kannanir sýndu en svo varð ekki,“ segir Guðmundur. Skoða verði hvað hafi valdið þessu og gera umbætur.

mbl.is/KG
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert