Fyrstu tölur ákveðin vonbrigði

Kristján Þór Júlíusson, oddviti sjálfstæðismanna á Akureyri, segir fyrstu tölur ákveðin vonbrigði. „Ég dreg enga dul á það að mér finnst þetta fremur rýrt," segir hann.

Spurður um ástæðuna segir hann: "Það er voðalega erfitt að segja til um það," segir hann. „Ríkisvaldið stalst hins vegar mjög mikið inn í umræðuna hér á Akureyri í þessum kosningum; þ.e. umræðan um þátt ríkisvaldsins í þjónustu við borgara landsins."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert