Samfylkingin í Reykjavík vill að öll leikskólabörn í Reykjavík njóti sjö stunda gjaldfrjáls leikskóla haustið 2008. Þetta var kynnt á blaðamannafundi efstu frambjóðenda Samfylkingarinnar í Reykjavík í dag. Áætlaður kostnaður borgarsjóðs vegna þessa er 1,2 milljarðar á ári, segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóraefni Samfylkingarinnar.