B-listinn í Reykjavík hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, í Fréttablaðinu í dag um að framkvæmdum við Sundabraut sé sjálfhætt í bili vegna stöðu efnahagsmála. Segir í yfirlýsingunni, að þetta verði að teljast kaldar kveðjur til Reykvíkinga, sem hafi beðið allt of lengi eftir Sundabraut.
Yfirlýsingin er eftirfarandi:
B-listinn minnir á að ríflega átta milljarðar króna af söluandvirði Símans liggja inni á bókum ríkissjóðs vegna framkvæmdar við Sundabraut. Við teljum að frekar hefði mátt auka útgjöld til samgöngumála á höfuðborgarsvæðinu fremur en draga úr mikilvægum framkvæmdum í höfuðborginni þar sem langstærsti hluti bílaumferðar í landinu er. Lagning Sundabrautar alla leið yfir á Kjalarnes er einhver arðsamasta vegaframkvæmd sem í boði er, auk þess sem hún er nauðsynleg út frá umferðaröryggi. Því hlýtur sú spurning að vera áleitin, hvort oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn telji virkilega að engar aðrar framkvæmdir á vegum ríkisins ættu frekar að bíða.
Oddviti Samfylkingarinnar hefur með ummælum sínum um einfalda Sundabraut komið áformum um framkvæmdirnar í uppnám, þar sem hann hefur m.a. kynnt hugmyndir sem ekki hafa farið í mat á umhverfisáhrifum og myndu því sjálfkrafa þýða nokkurra ára frestun á framkvæmdum. Nú kemur oddviti Sjálfstæðismanna fram og telur framkvæmdum sjálfhætt í bili. Er því greinilegt að Sundabraut er ekki ofarlega á forgangslista Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar í borgarstjórn. B-listinn hefur hins vegar kynnt hugmyndir sínar um Sundabraut í botngöngum á ytri leið og er þess albúinn að leiða verkið án frekari tafa, borgarbúum til hagsbóta.
Tími athafna er runninn upp, frekari tafir eru ekki ásættanlegar.