Lúðvík áfram í efsta sæti Vestmannaeyjalistans

Lúðvík Bergvinsson, alþingismaður, er áfram í efsta sæti Vestmannaeyjalistans fyrir næstu sveitarstjórnakosningar en listinn var kynntur í gærkvöldi. Listinn myndar nú meirihluta í sjö manna bæjarstjórn Vestmannaeyja ásamt sjálfstæðismönnum.

Mikil endurnýjun er á listanum. Páll Scheving, framkvæmdastjóri ÍBV, situr í fjórða sætinu sem litið er á á sem baráttusæti fyrir kosningarnar.

Listinn er eftirfarandi:

  1. Lúðvík Bergvinsson
  2. Hjörtur Kristjánsson
  3. Kristín Jóhannsdóttir
  4. Páll Scheving
  5. Guðlaugur Friðþórsson
  6. Aldís Gunnarsdóttir
  7. Stefán Jónasson
  8. Guðrún Erlingsdóttir
  9. Björgvin Eyjólfsson
  10. Steinunn Jónatansdóttir
  11. Sigurjón Ingvarsson
  12. Hafdís Sigurðardóttir
  13. Óðinn Hilmisson
  14. Kristín Valtýsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert