Fá lóð undir 180 herbergja hótel og afþreyingarmiðstöð

Samkvæmt frumteikningum virðist hótelið eiga að byggjast upp í fjölda …
Samkvæmt frumteikningum virðist hótelið eiga að byggjast upp í fjölda sexhyrndra forma, en betri mynd má fá af umfanginu í myndbandinu. Þá verða einnig nokkur smáhýsi í næsta nágrenni.

Sveitarfélagið Ölfus og Íslenskar fasteignir ehf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um fyrirhugaðar framkvæmdir við hótel og afþreyingarmiðstöð í Hafnarvík við Leirur í Þorlákshöfn. Fær félagið úthlutað lóð fyrir uppbyggingu fyrir allt að 180 herbergja hótel og afþreyingarmiðstöð auk smáhýsa.

Eins og sést á meðfylgjandi myndum og myndbandi er gert ráð fyrir að hótelið verði rétt við sjávarsíðuna með tilheyrandi útsýni á hafið, en það virðist eiga að samlaga það nokkuð sandöldunum sem þarna eru. Þá er í myndbandinu sýnd sundlaug og heitir pottar auk heilsuaðstöðu innandyra.

Stefnt er að því að hótelið verði hannað og starfrækt í nánu samstarfi við nærliggjandi golfvöll samkvæmt nánara samkomulagi við Golfklúbb Þorlákshafnar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu.

Sundlaugin sem gert er ráð fyrir samkvæmt þeim kynningarmyndum sem …
Sundlaugin sem gert er ráð fyrir samkvæmt þeim kynningarmyndum sem sendar voru út.

Þá segir að stefnt sé að því að framkvæmdir við uppbyggingu hótels geti hafist í lok næsta árs og að opnun þess geti orðið vorið 2026.

„Við höfum kynnt okkur vandlega þessi áform og höfum mikla trú á framtíð þessa svæðis. Hér eru allar forsendur til að staðsetja hótel og afþreyingarmiðstöð eins og áform okkar standa til, með golfvöllinn, Bláfjöllin og víðernið við anddyrið og sjálft Atlantshafið og þessa mögnuðu fjöru í bakgarðinum,“ er haft eftir Birni Gunnlaugssyni, verkefnastjóra hjá Íslenskum fasteignum.

„Það er stórt skref fyrir okkur og í raun viðurkenning að fá sterkt félag eins og Íslenskar Fasteignir til samstarfs um verkefni sem þetta. Við heimamenn vitum vel að hér eru mikil tækifæri en það er ekki sjálfgefið að fjárfestar og frumkvöðlar hafi þessa sömu sýn. Þau áform sem nú hafa verið undirrituð munu setja Þorlákshöfn á kortið í ferðaþjónustu svo um munar. Þegar það fer saman með uppbyggingu á nýjum miðbæ, stækkun hafnarinnar, fjölgun íbúa og fjölþættum umhverfisvænum áformum svo sem laxeldi á landi þá verður flestum ljóst að það er vöxtur framundan. Von okkar er því að Íslenskar Fasteignir horfi til áframhaldandi þátttöku hér,“ er haft eftir Elliða Vignissyni bæjarstjóra. Elliði Vignisson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert