Vætutíð í kortunum

Vætutíð er í kortunum.
Vætutíð er í kortunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lægðabrautin liggur yfir landið í dag og næstu daga og er áframhaldandi vætutíð í kortunum, samkvæmt spá Veðurstofunnar

Suðvestanátt og sunnan 5-13 m/s er spáð í dag en búast má við hvassari vindi við suðausturströndina fram eftir degi.

Þá léttir til norðaustanlands síðar í dag en bætir heldur í úrkomu á öðrum landshlutum í kvöld.

Viðvarandi lægðagangur viðheldur breytilegri vindátt og úrkomusömu veðri. Um miðja viku er síðan útlit fyrir norðlæga átt og kólnandi veður, einkum um landið norðanvert.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert