Fyrst íslenskra kvenna í aðalráðið

Af hálfu íslensku fulltrúanna hefur áhersla m.a. verið lögð á …
Af hálfu íslensku fulltrúanna hefur áhersla m.a. verið lögð á mikilvægi alþjóðasamvinnu um flugmál og umhverfismál tengd flugi í ljósi fyrirætlana ríkja um að draga úr losun. Ljósmynd/Samgöngustofa

Ísland var kosið í aðalráð Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) í gær í Montréal í Kanada. Valdís Ásta Aðalsteinsdóttir verður fulltrúi Íslands og mun fyrst íslenskra kvenna mun skipa eitt af 36 sætum aðalráðsins fram til næsta aðalþings, haustið 2025.

Undanfarin þrjú ár hefur hún starfað sem varafulltrúi Finnlands í aðalráðinu.

Valdís Ásta mun jafnframt stýra starfi NORDICAO hjá ICAO, sem er samstarf Norðurlandanna, Eistlands og Lettlands, að því er fram kemur í tilkynningu Samgöngustofu.

Ditte Helene Band frá Danmörku verður varafulltrúi Íslands á tímavilinu. 

Sendinefnd Íslands á þinginu skipa m.a. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Jón Gunnar Jónsson forstjóri Samgöngustofu.

Af hálfu íslensku fulltrúanna hefur áhersla verið lögð á mikilvægi alþjóðasamvinnu um flugmál, umhverfismál tengd flugi í ljósi fyrirætlana ríkja um að draga úr losun, vaxandi áherslu á netöryggi og gildi samvinnu og samhæfingar þjóða heimsins í þágu endurreisnar almannaflugs eftir heimsfaraldur,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert