„Þurfa að gyrða sig í brók“

Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Arnþór

„Stjórnvöld og Seðlabanki Íslands þurfa að gyrða sig í brók og tryggja óháða, sjálfstæða fjármálainnviði, óháðar, ódýrar og innlendar greiðslulausnir.“ Þetta kom fram í máli Oddnýjar G. Harðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag.

Oddný spurði hvers vegna notkun greiðslukorta og greiðslumiðlunar hér á landi væri margfalt dýrari fyrir okkur Íslendinga en íbúa hinna norrænu ríkjanna. Hún svaraði svo og sagði að það væri vegna þess að greiðslulausnir okkar eru háðar erlendum aðilum.

„Allt of kostnaðarsamt“ fyrir neytendur

„Heimildargjör og uppgjör innlendra debetkorta fer fram erlendis. Það þýðir að íslenskir neytendur eru ekki bara að greiða til íslenskra banka heldur borga þeir einnig til VISA og Mastercard í útlöndum. Hagnaður bankanna af þessu fyrirkomulagi hleypur á milljörðum en fyrir okkur neytendur er þetta allt of kostnaðarsamt því að allir milliliðir vilja sitt á öllum stöðum,“ sagði Oddný.og benti á að auk þess geti þetta fyrirkomulag ógnað þjóðaröryggi.

Þá benti hún á að í gær áréttaði fjármálastöðugleikanefnd í yfirlýsingu sinni mikilvægi þess að auka öryggi í innlendri greiðslumiðlun til að tryggja rekstrarsamfellu, m.a. með vísan til vaxandi netógnar.

Sjálfstæðar, óháðar, ódýrari og öruggari greiðslulausnir

„Við þurfum sjálfstæðar og óháðar greiðslulausnir sem eru bæði ódýrari en þær sem við búum við og öruggari. Krafan ætti að vera sú að ávallt séu til staðar virkar lausnir sem lúta í einu og öllu íslenskri löggjöf um eignarhald, umráð og notkunarrétt og eru algerlega óháðar inngripum erlendra aðila sem getur ógnað innlendri greiðslumiðlun og fjármálastöðugleika“ sagði Oddný og bætti við:

„Það þarf að auka samfélagslegan ábata og tryggja þjóðaröryggi. Hvers vegna draga íslensk stjórnvöld lappirnar í þessum efnum?“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert