153 andlát á Íslandi vegna Covid-19

Alma Möller Landlæknir
Alma Möller Landlæknir mbl.is/Eggert Jóhannesson

Yfirferð dánarvottorða hjá embætti landlæknis hefur leitt í ljós að samtals hafi orðið 153 andlát á Íslandi vegna COVID-19 frá upphafi faraldurs til 1. apríl 2022. Þetta eru andlát þar sem COVID-19 hefur greinst innan 28 daga fyrir andlátið og valdið dauða viðkomandi samkvæmt dánarvottorði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Embætti landslæknis.

Þar segir jafnframt að dánarvottorð berist ekki að jafnað til landlæknis fyrr en mörgum vikum eftir andlát, og séu þau því ekki hentug leið til að fylgjast með dánarorsökum í rauntíma. Segir einni að sjúkrahús hafi sent tilkynningar beint til sóttvarnalæknis um dauðsföll vegna COVID-19 frá upphafi faraldurs. 

Í tilkynningunni segir að samtals hafi þannig borist 101 tilkynning um andlát til sóttvarnalæknis á ofangreindu tímabili, en að árið 2020 hafi tvö andlát ekki verið tilkynnt og árið 2022 voru 50 andlát ekki tilkynnt miðað við dánarvottorð. Þá kemur fram að skýringin á því að ekki hafi öll dauðsföll verið tilkynnt beint til sóttvarnalæknis á þessu ári sé sú að ekki hafi verið óskað eftir því fyrr í lok febrúar 2022 að allar heilbrigðisstofnanir sendu slíkar tilkynningar.

Þá kemur fram að 18 andlát vegn Covid-19 hafi verið tilkynnt í apríl, og eitt það sem af er maímánuði. 

Umframdauðsföll sennilega áreiðanlegasta leiðin

Í tilkynningunni segir að áreiðanlegasta aðferðin til að meta fjölda andláta á tímum COVID-19 sé sennilega að skoða svokölluð umframdauðsföll en þá er fjöldi dauðsfalla af öllum orsökum borinn saman við meðalfjölda andláta undanfarinna ára.

„Þegar umframdauðsföll eru skoðuð með þessum hætti á Íslandi sést marktæk aukning í mars árið 2022 hjá einstaklingum eldri en 70 ára en ekki sést aukning fyrir heildarfjölda andláta,“ segir í tilkynningunni. Hins vegar hafi sést marktæk fækkun andláta hjá eldri en 70 ára árin 2020 og 2021. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert