Guðmundur Felix kominn í endurhæfingu

Guðmundur Felix ásamt þremur hjúkrunarfræðingum sem hann kynntist á Édouard …
Guðmundur Felix ásamt þremur hjúkrunarfræðingum sem hann kynntist á Édouard Herriot spítalanum í Lyon. Ljósmynd/Guðmundur Felix

Eftir tæpar sjö vikur á spítala er Guðmundur Felix Grétarsson, sem fékk nýverið grædda á sig handleggi í Lyon í Frakklandi, kominn í endurhæfingu. Hann dvelur nú á endurhæfingarmiðstöð í Frakklandi. 

„Ég tók einungis með mér handfarangur,“ skrifar Guðmundur, sem hefur lengi verið þekktur fyrir beittan húmor, á Facebook-síðu sína. 

Guðmundur Felix ásamt starfsfólki spítalans sem hann er einkar ánægður …
Guðmundur Felix ásamt starfsfólki spítalans sem hann er einkar ánægður með. Ljósmynd/Guðmundur Felix

„Það er gott að halda áfram en ég mun sakna starfsfólksins sem hefur verið með mér síðustu vikur,“ skrifar Guðmundur.

Guðmundur ber starfsfólki spítalans sem hann dvaldi á góða söguna en með þessari frétt fylgja tvær myndir sem Guðmundur birti af sér og hluta af starfsfólki spítalans. 

After almost 7 weeks Hôpital Édouard Herriot I took the next step today and moved to the rehabilitation center....

Posted by Felix Gretarsson - Coaching on Mánudagur, 1. mars 2021
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert