Kvartar til ESA vegna niðurgreiðslu sumarnámskeiða

FA segir að einkarekin fyrirtæki innan félagsins geti ekki keppt …
FA segir að einkarekin fyrirtæki innan félagsins geti ekki keppt við námskeið háskólanna þar sem þau séu ríkisstyrkt. mbl.is/Árni Sæberg

Félag atvinnurekenda hefur sent Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) formlega kvörtun vegna niðurgreiðslna stjórnvalda á sumarnámskeiðum háskóla, sem haldin eru í beinni samkeppni á vegum félagsmanna FA, einkarekinna fyrirtækja.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Félags atvinnurekenda og kemur þar fram að ESA hafi staðfest móttöku kvörtunarinnar.

Félag atvinnurekenda sendi menntamálaráðherra erindi í síðustu viku vegna framlags mennta- og menningamálaráðuneytis til sumarnáms í háskólum landsins upp á 500 milljónir króna, sem komið var á til að bregðast við atvinnuleysi í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.

Drjúgur hluti fjárveitingarinnar rennur til endur- og símenntunarstofnana háskólanna og námskeið, sem eru utan verksviðs háskólanna eins og það er skilgreint í lögum, eru niðurgreidd um tugi þúsunda króna samkvæmt FA. Sú starfsemi sé í beinni samkeppni við námskeið á vegum einkarekinna fræðslufyrirtækja.

Ekki hægt að keppa við námskeið á 3.000 kr

„Háskólarnir, sem njóta ríkisstyrkja fyrir, bjóða námskeið á 3.000 krónur í krafti niðurgreiðslunnar. Það er verð sem keppinautar þeirra geta ekki með nokkru móti keppt við. FA benti í erindi sínu á aðra og sanngjarnari leið til að styrkja sumarnám, jafnt á vegum háskólanna og annarra fræðslufyrirtækja, en hefur ekki fengið nein svör frá ráðuneytinu,“ segir í tilkynningu FA.

FA færir rök fyrir því í kvörtuninni til ESA að útfærsla niðurgreiðslunnar brjóti gegn 61. grein samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem bannar veitingu samkeppnishamlandi ríkisstyrkja. Þá hefur félagið fengið þær upplýsingar frá ESA að stjórnvöld hafi ekki borið ríkisstyrkina undir eftirlitsnefndina

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert