Rekstrarafgangur Kópavogsbæjar nam 1,3 milljörðum króna árið 2018 en gert hafði verið ráð fyrir 798 milljónum í fjárhagsáætlun með viðauka. Skuldahlutfall bæjarins var 108% í árslok 2018 og lækkar úr 133% frá árslokum 2017.
„Afkoma bæjarins er helmingi betri en við höfðum reiknað með sem sýnir enn og aftur hversu sterkur rekstur bæjarins er. Þessi niðurstaða er einkar ánægjuleg í ljósi þess að við lækkuðum fasteignaskatta- og gjöld á íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Við erum líka með útsvar undir lögbundnu hámarki og höfum ekki hækkað gjaldskrár í samræmi við kostnaðarhækkanir,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs í tilkynningu.
„Í Kópavogi hafa verið ýmis konar umsvifamiklar framkvæmdir en við höfum ekki tekið nein lán fyrir þeim framkvæmdum. Það eru hins vegar blikur á lofti og engin vafi á því að rekstur sveitarfélaga verður erfiðari í ár en í fyrra. Fall Wow Air og annar fyrirséður samdráttur í ferðaþjónustu hefur áhrif bæði á skatttekjur og velferðarútgjöld. Því er mikilvægt að sýna skynsemi og aðhald í rekstri,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs.“
Fjárfest var fyrir 3,6 milljarða í eigum bæjarins. Stærsta einstaka framkvæmdin var bygging nýs íþróttahúss við Vatnsendaskóla sem nýtist skólanum og íþróttafélaginu Gerplu en 373 milljónir fóru í húsið 2018 sem kostaði um 1,1 milljarð í heildina.
Þá voru mikil umsvif við Kársnesskóla. Keyptar voru sjö skólastofur sem settar voru við skólann í Vallargerði og gengið frá lóðinni þar. Niðurrif á húsnæði skólans við Skólagerði hófst en framkvæmdir við nýtt skólahús þar hefjast sumarið 2019. Alls fóru 460 milljónir í framkvæmdir við Kársnesskóla.
Bygging húsnæðis fyrir Skólahljómsveit Kópavogs hófst en 111 milljónir fóru í nýtt húsnæði árið 2018 sem áætlað er að verði vígt í árslok 2019. Grunn- og leikskólalóðir voru endurnýjaður fyrir 160 milljónir en skólabyggingar, fyrir utan Kársnesskóla fyrir um 330 milljónir.
Miklar framkvæmdir voru í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar og nam fjárfestingin um 305 milljónum króna. Gervigras í Kórnum var endurnýjað og unnið að endurbótum á útivelli við Kórinn. Gervigras í Fagralundi var endurnýjað. Þá hófust framkvæmdir við endurnýjun Kópavogsvallar.
Fjárfest var í gatnaframkvæmdum fyrir um 1,3 milljarða króna.