Endurbætur á Kísilverksmiðjunni í Helguvík

Kísilverið stendur autt í Helguvík.
Kísilverið stendur autt í Helguvík. mbl.is/Sigurður Bogi

Vinna þarf sérstaklega að kynningu og samráði gagnvart íbúum við vinnslu frummatsskýrslu svo hægt sé að reka kísilverksmiðjuna í Helguvík í sátt við íbúa svæðisins. Þetta er meðal þess sem felst í matsáætlun sem Skipulagsstofnun hefur samþykkt vegna vegna fyrirhugaðra endurbóta á kísilverksmiðjunni í Helguvík í Reykjanesbæ.

Um er að ræða heildaframleiðslu allt að 100.000 tonnum af kísli á ári í allt að fjórum ljósbogaofnum, stækkun og endurbótum á núverandi mannvirkjum kísilverksmiðjunnar til að uppfylla skilyrði Umhverfisstofnunar.

Í ákvörðun Skipulagsstofnunar um tillögu að matsáætlun er fjallað um heilsu, samráð, samfélag, ásýnd, valkosti, mengun, veður, fráveitu, grunnvatn og vöktun.

Athugasemdir Skipulagsstofnunar í ákvörðun sinni eru eftirfarandi:

  • Skipulagsstofnun telur að vinna þurfi sérstaklega að kynningu og samráði gagnvart íbúum við vinnslu frummatsskýrslu svo hægt sé að reka verksmiðjuna í sátt við íbúa svæðisins.
  • Skipulagsstofnun bendir á að í mörgum athugasemdum almennings við tillögu að matsáætlun eru ábendingar frá fólki sem hefur fundið fyrir óþægindum og veikindum þegar kísilverið starfaði. Í frummatsskýrslu þarf að gera grein fyrir áhrifum kísilversins á heilsu þar sem megin áhersla verði lögð á afleidd áhrif á heilsu af loftgæðum einkum af völdum mengunarefna og lyktar frá verksmiðjunni. 
  • Í frummatsskýrslu þarf að fjalla um mismunandi valkosti fyrir fyrirkomulag mengunarvarna, losunar og uppsetningu skorsteina. Einnig þarf að fjalla um kosti þess að ræsa ekki verksmiðjuna aftur sem og gera grein fyrir því að framleiðsla verði minni en fyrirhuguð áform uppá 100.000 tonn á ári.
  • Í frummatsskýrslu þarf að gera grein fyrir mögulegri hámarksmengun við óhagstæð skilyrði.
  • Gera þarf grein fyrir styrk snefilefna og hvort og þá hvernig þau geti borist út í umhverfið. Einnig þurfi að gera grein fyrir grunngildum viðeigandi efna og álagsþoli svæðisins.  
  • Í frummatsskýrslu þarf að gera grein fyrir fráveitu og hugsanlegum áhrifum á grunnvatn vegna framkvæmdarinnar. Jafnframt þarf að gera grein fyrir áhrifum áætlaðra tæknilegra úrbóta á loftgæði, styrk og dreifingu efna. Einnig þarf í frummatskýrslu að leggja mat á samfélagsþætti líkt og vinnumarkað og íbúaþróun í nærsvæði kísilversins. Að auki þarf að fjalla nánar um ásýndarbreytingar vegna uppbyggingarinnar og sýna þarf ásýndarbreytingar frá fleiri sjónarhornum sem séu upplýsandi fyrir íbúa í nálægu þéttbýli.
  • Setja skal fram tillögu um vöktun á áhrifum kísilversins á heilsu á starfstíma.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert