Inga og Kristján sigurvegarar á Mjölni Open

Frá vinstri: Margrét Ýr Sigurjónsdóttir, Inga Birna Ársælsdóttir og Gunnhildur …
Frá vinstri: Margrét Ýr Sigurjónsdóttir, Inga Birna Ársælsdóttir og Gunnhildur Þorkelsdóttir. Ljósmynd/Mjölnir

Fullt var út úr dyrum á Mjölni Open, stærsta uppgjafarglímumót á Íslandi, sem fram fór í húsakynnum Mjölnis í Öskjuhlíðinni í dag en rúmlega sextíu keppendur voru skráðir til leiks frá átta félögum alls staðar af landinu. Kristján Helgi Hafliðason og Inga Birna Ársælsdóttir úr Mjölni voru sigurvegarar dagsins en þau sigruðu bæði opnu flokkana og sína þyngdarflokka. 

Auk þess vann Kristján Helgi til verðlauna fyrir uppgjafatak mótsins sem var armlás í glímu hans gegn Bjarka Þór Pálssyni frá Reykjavík MMA.

Frá vinstri: Halldór Logi Valsson, Kristján Helgi Hafliðason og Bjarki …
Frá vinstri: Halldór Logi Valsson, Kristján Helgi Hafliðason og Bjarki Þór Pálsson. Ljósmynd/Mjölnir

Er þetta í fyrsta sinn sem Kristján Helgi vinnu opinn flokk karla. Hann sigraði Halldór Loga Valsson, sigurvegara mótsins frá því í fyrra, í úrslitum.

Auk þess vann Ingibjörg Birna opinn flokk kvenna á Mjölnir Open í fyrsta skipti. Á undanförnu ári hefur hún unið opna flokkinn á öllum stóru jiu-jitsu mótunum á Íslandi (Íslandsmeistaramótið og Grettismótið og svo núna Mjölnir Open). 

Öll úrslit mótsins má sjá hér að neðan:

-60 kg flokkur kvenna:
1. sæti: Ingibjörg Birna Ársælsdóttir (Mjölnir)
2. sæti: Álfrún Cortez Ólafsdóttir (Mjölnir)
3. sæti: Aniko Volentics (Mjölnir)

-70 kg flokkur kvenna
1. sæti: Margrét Ýr Sigurjónsdóttir (Mjölnir)
2. sæti: Guðrún Lilja Gunnarsdóttir (Mjölnir)
3. sæti: Ásta Bolladóttir (Mjölnir)

+70 kg flokkur kvenna
1. sæti: Arna Diljá S. Guðmundsdóttir (Mjölnir)
2. sæti: Ásta Sveinsdóttir (Mjölnir)
3. sæti: Katrín Ragnarsdóttir (Mjölnir)

-66 kg flokkur karla
1. sæti: Pétur Óskar Þorkelsson (Mjölnir)
2. sæti: Viktor Gunnarsson (Mjölnir)
3. sæti: Daniel Alot (Mjölnir)

-77 kg flokkur karla
1. sæti: Valentin Fels Camilleri (Mjölnir)
2. sæti: Vilhjálmur Arnarsson (Akureyri Jiu-Jitsu)
3. sæti: Valdimar Torfason (Mjölnir)

-88 kg flokkur karla
1. sæti: Kristján Helgi Hafliðason (Mjölnir)
2. sæti: Bjarki Þór Pálsson (Reykjavík MMA)
3. sæti: Sigurgeir Heiðarsson (Mjölnir)

-99 kg flokkur karla
1. sæti: Halldór Logi Valsson (Mjölnir)
2. sæti: Þórhallur Ragnarsson (Mjölnir)
3. sæti: Bjarni Kristjánsson (Mjölnir)

+99 kg flokkur karla
1. sæti: Birgir Rúnar Halldórsson (Mjölnir)
2. sæti: Eggert Djaffer Si Said (Mjölnir)
3. sæti: Pétur Óskarsson (Mjölnir)

Opinn flokkur kvenna
1. sæti: Ingibjörg Birna Ársælsdóttir (Mjölnir)
2. sæti: Margrét Ýr Sigurjónsdóttir (Mjölnir)
3. sæti: Gunnhildur Þorkelsdóttir (Mjölnir)

Opinn flokkur karla
1. sæti: Kristján Helgi Hafliðason (Mjölnir)
2. sæti: Halldór Logi Valsson (Mjölnir)
3. sæti: Bjarki Þór Pálsson (Reykjavík MMA)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert