Menntadagur atvinnulífsins í beinni

Menntadagur atvinnulífsins fer fram í Hörpu í dag.
Menntadagur atvinnulífsins fer fram í Hörpu í dag. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Læsi í ýmsum myndum verður til umfjöllunar á Menntadegi atvinnulífsins í dag sem fer fram í Hörpu. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, flytur ávarp og Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, veitir Menntaverðlaun atvinnulífsins.

Hægt er að fylgjast með dagskránni í beinni útsendingu hér á mbl.is en fjallað verður um stöðuna á Íslandi samanborið við nágrannaþjóðirnar. Einnig verður stiklað á stóru um mikilvægi upplýsingatæknilæsis, fjármálalæsis og menningarlæsis.

Um árlegan viðburð er að ræða en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

Dagskrána í heild má finna hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert