Einn af hverjum þremur frá N-Ameríku

Ferðamenn á Þingvöllum.
Ferðamenn á Þingvöllum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Brottfarir erlendra farþega frá Íslandi voru rúmlega 278.600 í júlí sem er 2,5% fjölgun miðað við sama mánuð í fyrra, samkvæmt talningum Ferðamálastofu og Isavia í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Fjölgunin í júlí byggir að mestu leyti á Bandaríkjamönnum sem hafa aukið hlutdeild sína til muna, segir í frétt frá Ferðamálastofu. Rúmlega 27% fleiri Bandaríkjamenn fóru frá Leifsstöð í júlí í ár en á sama tíma í fyrra. Norðurlandabúum, Bretum, Frökkum, Þjóðverjum og Kanadamönnum fækkaði hins vegar um 9-19% á milli ára. 

Frá áramótum hafa rúmlega 1.300 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi um Leifsstöð sem er tæplega 5% fjölgun miðað við sama tímabil í fyrra, segir í fréttatilkynningunni.

Erlendum farþegum fjölgar um 2,5% í júlí

Í júlí voru erlendir brottfararfarþegar í Leifsstöð 278.613 og hafa aldrei verið fleiri í júlímánuði. Bandaríkjamenn eru fjölmennastir þjóðerna í júlí með tæplega 103 þúsund farþega eða 36,9% af heild. Þar á eftir koma Þjóðverjar, Bretar, Frakkar og Kanadamenn með 4,5-7,4% hlutdeild.

Fjölgun farþega í júlí var tæplega 6.700 á milli ára eða 2,5% sem er óveruleg fjölgun miðað við fyrri ár. Bandaríkjamönnum fjölgaði um rúmlega 27% í mánuðinum á milli ára á meðan farþegum frá flestum öðrum ríkjum fækkaði verulega. Sem dæmi fækkaði Þjóðverjum um 19,6% í júlí, Frökkum um 16,7%, Bretum um 13,3% og Kanadamönnum um 9,1% miðað við júlí í fyrra. Hefði fjöldi Bandaríkjamanna staðið í stað frá því í júlí í fyrra hefði brottfararfarþegum júlímánaðar fækkað um 5,6% á milli ára.

Fleiri en spár gerðu ráð fyrir

Í fréttatilkynningu Ferðamálastofu segir að raunfjöldi brottfararfarþega í júlí sé nokkru meiri en gert var ráð fyrir í uppfærðri spá Isavia fyrir ferðasumarið 2018 sem kynnt var 30. maí. Þar var áætlað að fjöldi erlendra brottfararfarþega yrði tæplega 242 þúsund í júlí eða 36 þúsundum færri en fóru frá landi. Sömu sögu er að segja í júní en þá fóru rúmlega 19 þúsund fleiri farþegar frá Íslandi en gert var ráð fyrir í spá Isavia.

Markaðurinn að breytast

Frá áramótum 2018 hafa rúmlega 1.300 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi um Leifsstöð sem er tæplega 5% fjölgun miðað við sama tímabil í fyrra. Markaðshlutdeild Norður-Ameríku (Bandaríkja og Kanada) vegur mest með 34% af heild.

Frá Mið- og Suður-Evrópu og Bretlandseyjum koma 19% og 15% farþega. Norðurlandabúar og Asíubúar voru heldur færri, með 8% hlutdeild hvorir um sig og Austur-Evrópubúar voru 6% brottfararfarþega.

Breytt samsetning

Þegar hlutfallsleg samsetning brottfara er skoðuð fyrir fyrstu mánuði ársins (janúar-júlí) nokkur ár í röð sést glöggt hvernig hlutdeild Norður-Ameríku hefur verið að aukast ár frá ári einkum á kostnað Norðurlandabúa, en einnig Breta og Mið- og Suður-Evrópubúa. Einn af hverjum þremur farþegum kemur frá Norður-Ameríku.

Hlutdeild þjóðerna sem flokkast undir „annað” (þjóðir Asíu, Afríku, Mið- og Suður-Ameríku og Eyjaálfu – og vega þar Kínverjar, Ástralir og Nýsjálendingar þyngst) hefur aftur á móti aukist úr fimmtungi í fjórðung farþega á tímabilinu 2014-2018.

Ferðir Íslendinga utan

Rúmlega 66 þúsund Íslendingar fóru utan í júlí í ár eða 6% fleiri en í júlí 2017. Samtals voru brottfarir Íslendinga á tímabilinu janúar til júlí rúmlega 389 þúsund talsins eða 10,7% fleiri en á sama tímabili árið 2017.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert