Umsóknir um háskólanám við Háskólann á Bifröst eru um 25% fleiri en á síðasta ári.
Fjölgunin er fyrst og fremst í umsóknum um grunnnám en þær eru rúmlega 50% fleiri en í fyrra.
Umsóknum um meistaranám hefur fjölgað um 5% frá fyrra ári en það nám hefur verið í miklum vexti undanfarin ár, samkvæmt tilkynningu frá háskólanum.
Heldur færri umsóknir eru í Háskólagáttina sem er undirbúningsnám fyrir háskólanám. Í heild eru umsóknir í skólann um 16% fleiri en í fyrra. Reikna má með því að nýnemar í Háskólanum á Bifröst verði um 25% fleiri en á síðasta ári eða um 270.
„Við erum bjartsýn í Háskólanum á Bifröst. Skólinn er í fararbroddi í fjarnámi og nýjungar í námsframboði og kennsluháttum hafa verið að skila sér vel. Háskólinn á Bifröst er 100 ára á þessu ári og hlutverk skólans hefur alla tíð verið að mennta fólk fyrir leiðandi hlutverk í atvinnulífinu og samfélaginu. Skólinn mun halda áfram að þróast eins og þarf til að gegna hinu mikilvægu hlutverki sínu í íslensku samfélagi,“ segir Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst, í tilkynningunni.
Vinsælasta námslínan í Háskólanum á Bifröst er forysta og stjórnun sem er kennd í meistaranámi. Í grunnnáminu er viðskiptafræði með mismunandi áherslum vinsælust en einnig hefur verið góð aðsókn í viðskiptalögfræði og í diplómanám í opinberri stjórnsýslu.