Vill leggja niður bílanefnd ríksins

Fjármálaráðuneytið hefur ekki tekið undir rök Ríkisendurskoðunar um að bílanefnd ríkisins sé óþörf þar sem samningar um kaup eða leigu bifreiða ættu að lúta sömu reglum og önnur innkaup og vera á ábyrgð forstöðumanna ríkisstofnana. 

Þetta kemur fram á vef Ríkisendurskoðunar. Þar segir að stofnunin ítreki ekki tvær ábendingar til fjármála- og efnahagsráðuneytis frá árinu 2015 um að fella úr gildi reglugerð um bifreiðamál ríkisins og leggja niður bæði bílanefnd ríkisins og sam­starfs­nefnd um niðurfellingu vöru­gjalds af ökutækjum björg­­unar­sveita.

„Ráðuneytið hefur ekki tekið undir rök Ríkisendurskoðunar um að bílanefnd ríkisins sé óþörf þar sem samningar um kaup eða leigu bifreiða ættu að lúta sömu reglum og önnur innkaup og vera á ábyrgð forstöðumanna ríkisstofnana. Stofnunin sér ekki tilgang með að ítreka ábendinguna, þar sem afstaða ráðuneytisins hefur í engu breyst frá árinu 2012,“ segir Ríkisendurskoðun.

Óþarfa milliliður

Þá segir, að samkvæmt fjármála- og efnahagsráðuneyti sé til skoðunar að færa verkefni sam­starfs­nefndarinnar til toll­stjóra líkt og Ríkisendurskoðun hafi lagt til. Einnig verði reglur um bifreiðamál ríkisins hugsanlega teknar til endurskoðunar eftir að lög um opinber fjármál hafa að fullu verið innleidd.

Ríkisendurskoðun bendir á að rúm tvö ár eru liðin frá því að lögin tóku gildi og að nefndin sé óþarfa milliliður í nútíma stjórnsýslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert