Utanríkisráðherra ræddi Brexit við Davis

David Davis ásamt Guðlaugi Þór Þórðarsyni.
David Davis ásamt Guðlaugi Þór Þórðarsyni. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti fund með David Davis, ráðherra útgöngumála í bresku ríkisstjórninni, í London í gær þar sem þeir ræddu gang viðræðna Breta og Evrópusambandsins um Brexit og fóru yfir áhrif útgöngunnar á Ísland og önnur EES-EFTA ríki.

Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins.

Fram kemur, að utanríkisráðherra hafi á fundinum fagnað niðurstöðu leiðtogafundar ESB í síðasta mánuði þar sem leyst var úr því hvernig alþjóðasamningar ESB, á borð við EES-samninginn, gilda gagnvart Bretlandi á bráðabirgðatímabilinu svokallaða. Það hefst í mars á næsta ári þegar Bretar ganga formlega úr ESB.

„Samkomulagið frá mars er afar mikilvægt fyrir Íslendinga og borgara annarra EES-EFTA ríkja þar sem það tryggir óbreytt ástand á millibilstímabilinu sem brátt gengur í garð. Þá er niðurstaðan ekki síður þýðingarmikil fyrir íslensk fyrirtæki sem flytja vörur og þjónustu til Bretlands. Í okkar huga er framtíðarfyrirkomulag á viðskiptum þessara ríkja eitt af þýðingarmestu utanríkismálum komandi tíma Ég greindi því Davis frá því á fundinum að Ísland væri þá og þegar reiðubúið til viðræðna og að í Brexit fælust tækifæri til að efla viðskiptasamband þessara vinaþjóða,“ er haft eftir Guðlaugi.

Guðlaugur Þór ásamt Keir Starmer.
Guðlaugur Þór ásamt Keir Starmer. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra hitti einnig Alan Duncan, ráðherra Evrópumála í breska utanríkisráðuneytinu, og ræddu þeir bæði öryggismál og málefni Brexit. Duncan þakkaði íslenskum stjórnvöldum sérstaklega fyrir þann ríka stuðning sem þau, ásamt fleiri vestrænum ríkjum, sýndu Bretum í kjölfar efnavopnaárásarinnar á Skripal-feðginin í Salisbury. Ráðherrarnir ræddu samstarf Breta og Íslendinga á sviði öryggismála, m.a. netöryggismál. Þá fóru ráðherrarnir yfir stöðu mála í Sýrlandi og viðbrögð alþjóðasamfélagsins við efnavopnaárás Sýrlandshers. „Það var mikill samhljómur í máli okkar og ljóst að hagsmunir okkar og Breta á sviði öryggis- og varnarmála fara saman og munu ríkin áfram rækta samstarfið á næstu misserum,“ er ennfremur haft eftir utanríkisráðherra.

Þá átti Guðlaugur Þór fund með Keir Starmer, þingmanni Verkamannaflokksins og skuggaráðherra útgöngumála, þar sem farið var yfir stöðu viðræðna ESB og Bretlands og stefnu Verkamannaflokksins í þessu mikilvæga máli. .“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert