Fannst látinn í sjónum

Karlmaður á sextugsaldri fannst látinn í sjónum norðan við Vatnagarða í Reykjavík á sjötta tímanum í morgun, en farið var að óttast um afdrif mannsins eftir að bátur hans fannst mannlaus neðan við athafnasvæði Samskipa í Kjalarvogi eftir klukkan eitt í nótt.

Þá þegar hófst víðtæk leit að manninum, sem lauk svo á sjötta tímanum eins og áður sagði. Ekki er grunur um saknæmt athæfi, en maðurinn var einn á ferð á bátnum. Ekki er hægt að birta nafn hins látna að svo stöddu, segir í tilkynningu sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert