Hvetja fólk til að bóka bílastæði

Hætta er á að bílastæðin við Leifsstöð fyllist um páska.
Hætta er á að bílastæðin við Leifsstöð fyllist um páska. mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Isavia hefur beint því til fólks sem hyggst leggja land undir fót um páskana og ferðast til og frá Keflavík á eigin bíl að bóka bílastæði við flugstöðina fyrirfram.

Er það gert til að forðast það að fólk fái ekki stæði fyrir bíla sína þegar á staðinn er komið. Í fyrra fylltust stæðin við Leifsstöð og olli það fólki töluverðum óþægindum.

Nýtt bókunarkerfi gerir fólki kleift að panta stæði í tíma og forpöntun fylgja einnig betri kjör á þjónustunni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert