Áfram hlýtt í veðri

Vor í lofti í Reykjavík.
Vor í lofti í Reykjavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fremur hæg sunnanátt í dag og víða léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi. Skýjað í öðrum landshlutum en þurrt að mestu.

Sunnan 8-13 m/s og rigning verður um tíma á morgun, einkum sunnan- og vestanlands. Hiti 3 til 10 stig að deginum. Hægari vindur og úrkomulítið annað kvöld.

Áfram er útlit fyrir suðlæga átt á miðvikudag, milt veður og vætusamt á Suður- og Vesturlandi, samkvæmt upplýsingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands. 

Veðurvefur mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert