Íhuga að sniðganga HM

Guðlaugur Þór Þórðarson.
Guðlaugur Þór Þórðarson. mbl.is/Hanna Andrésdóttir

Ríkisstjórn Íslands íhugar að sniðganga heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem fer fram í Rússlandi í sumar. Með þessu vill hún styðja Breta sem saka Rússa um að hafa eitrað fyrir rússneskan gagnnjósnara og dóttur hans á breskri grund. Þó ert skýrt að leikmenn og aðdáendur verða á sínum stað.

Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV. 

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra Íslands, segir að málið verði rætt meðal bandalagsþjóða Íslands og endanleg ákvörðun liggi ekki fyrir.

Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði fagnar eftir að Ísland tryggði sér …
Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði fagnar eftir að Ísland tryggði sér sæti á HM í Rússlandi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þetta eru grafalvarlegir hlutir sem tengjast ekki bara Bretum. Hver niðurstaðan verður á eftir að koma í ljós. Okkar lið og aðdáendur mæta,“ sagði Guðlaugur við RÚV.

Spurður hvort íslenskir ráðamenn fari ekki til Rússlands sagði hann að málið væri í skoðun. Ísland mætir Argentínu í fyrsta leik sínum í Moskvu 16. júní.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert