Mislæg gatnamót tekin í notkun

Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra manna kátastur eftir að hafa klippt …
Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra manna kátastur eftir að hafa klippt á borðann í dag. mbl.is/Rax

Klippt var á borða og mislæg gatnamót Reykjanesbrautar og Krísuvíkurvegar formlega tekin í notkun skömmu eftir hádegi í dag. 

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri opnuðu gatnamótin formlega í dag með því að klippa á borða ásamt Jóni Gunnarssyni, fyrrverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Guðlaugu Kristjánsdóttur og Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarfulltrúum í Hafnarfirði og forráðamönnum verktakanna, Andrési Sigurðssyni frá Loftorku ehf. og Dofra Eysteinssyni frá Suðurverki hf.

Loftmynd af gatnamótunum.
Loftmynd af gatnamótunum. Ljósmynd/Hersir Gíslason

Um Reykjanesbraut á þessum stað fara 15 þúsund bílar á dag og um 6 þúsund um Krýsuvíkurveg eða um 21 þúsund bílar daglega í allt og er umferðaröryggi því aukið. Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, sagði fyrr í haust að fækka þyrfti slysum á veginum í gegnum bæinn.

„Við erum með tvö slysam­estu hring­torg á höfuðborg­ar­svæðinu auk veg­arkafl­ans frá Kaldár­sels­vegi að mis­lægu gatna­mót­un­um þar sem nú standa yfir fram­kvæmd­ir þar sem er bara einn veg­ur með ak­rein­ar í sitt hvora átt. Þarna erum við með um 28 slys á hvern kíló­metra á ári. Reykja­nes­braut­in klýf­ur bæ­inn í sund­ur og stór hluti af um­ferðinni eru bæj­ar­bú­ar í Hafnar­f­irði,“ sagði Haraldur.

Verkið felst í gerð mislægra gatnamóta Reykjanesbrautar við Krýsuvíkurveg. Til framkvæmdanna teljast einnig breytingar á Krýsuvíkurvegi, gerð tengivegar að Suðurbraut og tengivegar að Selhellu. Einnig er innifalin gerð göngu- og hjólastígs meðfram Suðurbrautartengingu og hraðatakmarkandi aðgerðir á Suðurbraut. Þá er gerð hljóðmana við Reykjanesbraut í Hafnarfirði hluti verksins. Auk þess eru innifaldar breytingar á lagnakerfum veitufyrirtækja og landmótun.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er ýmissi frágangsvinnu enn ólokið en henni verður lokið á vormánuðum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert