Nýr listabókstafur fyrir 10. október

Dómsmálaráðuneytið.
Dómsmálaráðuneytið. mbl.is/Hjörtur

Þeir stjórnmálaflokkar sem hafa ekki skráðan listabókstaf og ætla að bjóða fram lista fyrir næstu kosningar þurfa að gera það eigi síðar en á hádegi, þriðjudaginn 10. október næstkomandi, eða þremur sólarhringum áður en framboðsfrestur rennur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands. Dómsmálaráðuneytið heldur skrá um listabókstafi stjórnmálasamtaka sem buðu fram lista við síðustu alþingiskosningar.

Tilkynningin um listabókstaf skal undirrituð af 300 kjósendum hið minnsta.

„Heiti nýrra stjórnmálasamtaka má ekki vera þannig að ætla megi að villst verði á því og heiti samtaka sem eru á skrá. Ráðuneytið ákveður bókstaf nýrra samtaka að fengnum óskum þeirra og með hliðsjón af listabókstöfum annarra stjórnmálasamtaka í undangengnum kosningum,” segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert