Margrét Marteinsdóttir hefur verið ráðin sem kynningar- og viðburðastjóri hjá landssamtökunum Geðhjálp.
Margrét starfaði hjá RÚV í 16 ár. Lengst af á fréttastofu RÚV. Síðustu ár hefur hún sinnt ýmsum verkefnum. Hún tók meðal annars þátt í að opna Kaffihús Vesturbæjar og sá um rekstur staðarins fyrsta árið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Geðhjálp.
Þá hefur Margrét meðal annars skrifað handbók fyrir neytendur um umhverfisvænan lífsstíl. Margrét hefur einnig unnið við umönnun á deild fyrir fólk með heilabilun á hjúkrunarheimilinu Grund. Síðast starfaði Margrét í Kvennaathvarfinu.
Helstu verkefni Margrétar hjá Geðhjálp tengjast kynningarmálum og upplýsingamiðlun. Einnig viðburðastjórnun, fræðslu og úttektum á þjónustu og réttindum.