Þriggja bíla árekstur

Tveir voru fluttir á slysadeild með minniháttar meiðsli.
Tveir voru fluttir á slysadeild með minniháttar meiðsli. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Þrír bílar lentu í árekstri á Suðurlandsvegi til móts við afleggjara inn í Heiðmörk um klukkan 20 í kvöld.

Samtals voru tíu manns í bílunum þremur og voru tveir fluttir á slysadeild Landspítalans með minniháttar meiðsl.

Ekki fengust upplýsingar nákvæmlega um hver tildrög árekstursins voru en bílarnir voru allir að aka í sömu átt og um aftanákeyrslur var að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert