Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn manns um tvítugt sem veifaði skotvopni í Hafnarfirði í nótt og kann að hafa ógnað fólki með því. Ekki liggur ljóst fyrir hvort maðurinn hafi verið að ógna fólki með byssunni, en margt bendir til þess.
Helgi Gunnarsson lögreglufulltrúi segir að lögregla hafi yfirheyrt tvo vini mannsins, sem lögregla þekkir til, en þeir hafi ekki tengst málinu. „Það er búið að lýsa eftir honum, við erum bara á útkikki. Menn geta aldrei falist lengi í svona litlu landi,“ segir Helgi.
Fyrri fréttir mbl.is um málið: