Um 1.400 tonn af hvalaafurðum flutt til Japans

Winter Bay fer norðausturleiðina með hvalaafurðir í þriðja sinn.
Winter Bay fer norðausturleiðina með hvalaafurðir í þriðja sinn. Ljósmynd/Guðmundur Steinbach

Flutningaskipið Winter Bay fór frá Hafnarfirði 17. ágúst með um 1.400 tonn af hvalaafurðum áleiðis til Osaka í Japan. Skipið mun sigla norðausturleiðina og er reiknað með að það komi á áfangastað í kringum 17. september.

„Þetta er kjöt, spik, rengi, tunga og fleira,“ sagði Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf. „Við vorum búnir að framleiða þetta fyrir Japan. Það var ekkert annað að gera en að koma þessu þangað. Svo sjáum við til hvernig spilast úr markaðnum.“

Kristján sagði að norðausturleiðin til Osaka væri um 8.000 sjómílum (14.800 km) styttri en ef siglt væri suður fyrir Suður-Afríku. Norðausturleiðin er íslaus og verður það fram á haustið. Þetta er í þriðja sinn sem skipið siglir með afurðir Hvals hf. norðausturleiðina. Kristján sagði að heldur hefði dregið úr eftirspurn eftir hvalaafurðum í Japan.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert