Hlöðuball með Birgittu Haukdal, hrútasýning, garðatónleikar og Mæruhlaup eru meðal þess sem í boði er á Mærudögum á Húsavík sem haldnir verða 27. til 30. júlí.
Hátíðin var fyrst haldin árið 1994 og hefur hún breyst í tímans rás, en í dag eru Mærudagar bæjar- og fjölskylduhátíð. Hátíðin hefst á fimmtudag þegar bæjarbúar skreyta bæinn í hverfalitum og bjóða upp á garðatónleika í hverju hverfi.
Guðni Bragason, hjá GB viðburðum, sér um framkvæmd hátíðarinnar ásamt bænum. Hann segir Mærudaga ekki vera útihátíð og aldurstakmörk á tjaldsvæðinu 21 ár. Mæra þýðir á Húsavík sælgæti og má því kalla hátíðina sælgætisdaga.
Í umfjöllun um hátíðina í Morgunblaðinu í dag segir Kristján Þór Magnússon, bæjarstjóri Norðurþings, að veðrið hafi leikið við hátíðargesti á undanförnum árum og vonandi verður framhald þar á.