Rósa Jónsdóttir risakattaræktandi hefur ásamt fjölskyldu sinni ræktað risaketti af tegundinni Maine Coon í tæp sjö ár. Á heimili fjölskyldunnar eru að staðaldri sjö kettir en þessa dagana eru kettirnir þrettán talsins. Kettirnir geta orðið allt að tvöfalt stærri en venjulegir kettir og hafa þeir stærstu náð 120 cm lengd. Upphaflega eru kettirnir frá Maine í Bandaríkjunum en hafa á undanförnum árum vaxið að vinsældum.
Þeir eru svo svakalega blíðir, þeir eru oft kallaðir blíðu risarnir (e.gentlegiants). Ég varð bara ástfangin enda mikil kattakona,“ segir Rósa Jónsdóttir,keflvískur risakattaræktandi, en hún hóf ræktun fyrir tæpum sjö árum. Kettirnir eru af tegundinni MaineCoon en nafnið er dregið af upprunastað kattanna, Maine-ríki í Bandaríkjunum. „Margir halda að þetta sé blanda afBobcat og húsketti, ég tel að þeir hafi orðið til í náttúrunni en það eru til ýmsar útgáfur af því hvernig þeir urðu til,“ segir Rósa sem að staðaldri er með sjö ketti inni á heimilinu.
Maine Coon-kettirnir eru stærstu kettir veraldar en þeir hafa oft verið kallaðir „hundar kattastofnsins“. Stærstu kettirnir eru tæplega tvöfalt stærri en venjulegir kettir og geta náð allt að 120 cm lengd og 10 kg þyngd.
Kettirnir komu fyrst til landsins fyrir 14 árum og hafa vinsældir þeirra aukist. „Maine Coon er vinsælasta tegund heims ásamt norska skógarkettinum, þeir eru víðs vegar um Bandaríkin og Evrópu ásamt því að þeir eru alltaf að verða vinsælli hér heima,“ segir Rósa. Hún segist hafa orðið vör við miklar vinsældir kattanna, „það er nánast alltaf biðlisti hjá mér, ég er til dæmis í goti núna og er strax búin að selja fimm af sex köttum,“ segir Rósa en eitt stykki af Main Coon-ketti kostar 140 þúsund krónur. Kettirnir eru seldir sem innikettir og geta verið á heimili þar sem önnur dýr eru, „við höfum orðið vör við að fólk alls staðar að er að kaupa kettina og ég hef sérstaklega tekið eftir því að fólk með hund hefur ákveðið að fá sér svona kött líka,“ segir Rósa. Þeir sem hafa áhuga á að eignast Maine Coon-kött geta haft samband í gegnum Facebook, „við tökum við fyrirspurnum um kettina á Facebook-síðunni okkar, kettirnir eru afhentir 12 vikna gamlir og við afhendingu erum við búin að ormhreinsa, örmerkja, gelda og bólusetja þá,“ segir Rósa og bætir við að allir kettirnir séu hreinræktaðir.
Kettirnir eru miklar félagsverur og segir Rósa að það þýði lítið að skilja þá eftir eina, „það er ekkert hægt að skilja þá eftir, þeir eru miklar félagsverur og það má segja að þeir verði bara hálfþunglyndir ef þeir eru einir í nokkra daga,“ segir Rósa. Hún segir að kettirnir séu afskaplega miklir mannvinir og bendir á að fólk sem er með kattaofnæmi þurfi ekki endilega að vera með ofnæmi fyrir Maine Coon-köttum. Sonur Rósu hefur alla tíð verið með kattaofnæmi en getur umgengist Maine Coon-ketti heimilisins án nokkurra vandræða. „Sonur minn hefur alltaf verið með slæmt kattaofnæmi en þetta eru einu kettirnir sem hann getur umgengist án þess að fá ofnæmi,“ segir Rósa.
Rósa hóf upphaflega ræktun með vinkonu sinni en þegar hún flutti á brott þurfti hún að finna nýtt nafn á ræktunina, fyrir valinu varð nafnið Amazing Elva's, til heiðurs systurdóttur Rósu. „Ég var í samstarfi við vinkonu mína en þegar hún flutti til Danmerkur varð ég að koma með nýtt nafn á ræktunina, systurdóttir mín sem aðstoðaði mig alltaf með got vildi að ég myndi velja alveg spes nafn. Hún lést í bílslysi fyrir tæpum fimm árum síðan og þá ákvað ég að nefna ræktunina Amazing Elva's henni til heiðurs,“ segir Rósa. Hún segir að fyrst og fremst sé ræktunin áhugamál, „ég starfa við að rækta kettina en það er ekki mikið upp úr þessu að hafa, við lítum á þetta sem áhugamál hérna á heimilinu,“ sagði Rósa.