Eldur kom upp í íbúð fjölbýlishúss á Ísafirði í nótt. Einn var í íbúðinni þegar eldurinn kom upp og tókst honum að komast út af sjálfsdáðum. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en töluverður reykur var þegar lögregla og slökkvilið komu á vettvang.
Að sögn varðstjóra í lögreglunni á Vestfjörðum er talið að kviknað hafi í út frá eldavél en rannsókn stendur yfir. Einhverjar skemmdir urðu á íbúðinni vegna reyks.