Neisti frá slípirokki kveikti eldinn

Slökkviliðsmenn að störfum við fiskimjölsverksmiðju HB Granda á Vopnafirði í …
Slökkviliðsmenn að störfum við fiskimjölsverksmiðju HB Granda á Vopnafirði í dag. mbl.is/Jón Sigurðsson

„Viðbrögð starfsmanna voru hárrétt, að mínu mati, enda er aldrei of varlega farið þegar eldur er annars vegar,“ segir Sveinbjörn Sigmundsson, verksmiðjustjóri í fiskmjölsverksmiðju HB Granda á Vopnafirði þar sem eldur kom upp í reykröri í morgun. „Slökkviliðsstjórinn mat það þannig á leiðinni að rétt væri að kalla einnig út slökkvilið frá Þórshöfn og Egilsstöðum en það kom fljótlega í ljós að það var sem betur fer ekki þörf fyrir þann liðsstyrk.“

Haft er eftir Sveinbirni í frétt á vef HB Granda að reykrör, sem liggur frá þurrkara í verksmiðjunni, var opnað til að þrífa það. „Við það hljóp neisti frá slípirokki í mjölleifar sem voru í rörinu og staðbundinn eldur kom upp. Okkar fyrstu viðbrögð voru að útiloka að súrefni kæmist að eldinum og síðan var hann slökktur með vatni.“

Sveinbjörn segir að dagana á undan hafi orðið vart við ákveðna tregðu í loftflæði um reykrörið og því hafi tækifærið verið notað til að opna rörið um leið og verksmiðjan var þrifin.

„Það var lokið við að vinna kolmunna í verksmiðjunni í gærmorgun. Við þrífum verksmiðjuna hátt og lágt þegar hlé verður á vinnslunni og það voru slík þrif í gangi þegar eldurinn kom upp í mjög takmörkuðu rými. Það gerðist upp úr klukkan átta í morgun og slökkviliðið var farið héðan kl. 10.30,“ segir Sveinbjörn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert