Mótmæla sameiningu á Austurvelli

Mótmælafundurinn hefst á Austurvelli kl. 15 í dag, sunnudag.
Mótmælafundurinn hefst á Austurvelli kl. 15 í dag, sunnudag. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Boðað er til mótmæla á Austurvelli í dag klukkan 15, vegna fyrirhugaðrar sameiningar Fjölbrautaskólans við Ármúla og Tækniskólans.

Að mótmælunum standa Samband íslenskra framhaldsskólanema, Nemendafélag FÁ, Jæja-hópurinn, Ungir píratar, Ungir jafnaðarmenn og Ung vinstri græn. Að auki mun kennarasamfélag FÁ eiga fulltrúa meðal ræðufólks. „Við mótmælum ólýðræðislegum vinnubrögðum við sameiningu FÁ og Tækniskólans,“ segir í fréttatilkynningu vegna mótmælanna. „Opin umræða um mikilvægar breytingar á samfélagi okkar er grunnstoð lýðræðisins. Menntakerfið þarf alvöru stefnumótun og fyrirsjáanleika. Samráð þarf að hafa við stórar breytingar. 

Við krefjumst þess að einkavæðingaráform, eins og hefur verið fjallað um í fjölmiðlum undanfarið um sameiningu FÁ og Tækniskólans, fari í gegnum lýðræðislega ferla til að tryggja gæði menntakerfisins og hag nemenda og kennara. Það er með öllu óásættanlegt að það sé reynt að koma svo stórum breytingum í gegn án almennilegrar umræðu, samráðs við nemendur og starfsfólk skólans og meðhöndlun þings. Ríkisstjórnin er í vinnu fyrir þing og þjóð. Við krefjumst þess að hún standi sig og hlusti á og virði vinnuveitendur sína!

Ef almenningur krefst þess ekki að vinnubrögðin breytist mun allt halda áfram sem hingað til.“

 Á mótmælafundinum verða fluttar ræður og meðal ræðumanna eru:

Andrés Ingi Jónsson, nefndarmaður í allsherjar- og menntamálanefnd og þingmaður VG, Ísabella Ýrr Hallgrímsdóttir, fulltrúi nemenda FÁ, Björn Leví Gunnarsson, nefndarmaður í allsherjar- og menntamálanefnd og þingmaður Pírata, og Róbert Örvar Ferdinandsson, kennari í FÁ.

Tónlist flytur Dagný Halla Ágústsdóttir. Fundarstjórn er í höndum Söru Oskarsson frá Jæja-hópnum.

Facebook-viðburður mótmælafundarins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert