Vilborgu Örnu fagnað í Leifsstöð

Vilborg kom til landsins í kvöld ásamt kærasta sínum Tómaszi …
Vilborg kom til landsins í kvöld ásamt kærasta sínum Tómaszi Þór. mbl.is/Ófeigur

Vilborg Arna Gissurardóttir Everest-fari kom til landsins nú í kvöld, en hún komst á toppinn aðfaranótt 21. maí. Tóm­asz Þór Veru­son, kær­asti Vil­borg­ar Örnu, fór út til Amsterdam og tók á móti henni þar í dag, en fjölskylda og vinir mættu á Keflavíkurflugvöll og fögnuðu heimkomu hennar nú í kvöld.

„Takk, ég veit ekki hvað ég á að segja nema takk,“ sagði Vilborg eftir að hafa faðmað foreldra sína sem voru meðal þeirra sem mættu út á flugstöð. Fjölmörg gleðitár komu fram og mikið var um hlátur hjá Vilborgu og þeim sem tóku á móti henni.

Sögðu vinir hennar í gamansömum tón að nú væri hún komin heim og færi vonandi ekki út á ný, alla vega ekki alveg strax.

Vil­borg Arna varð sjö­undi Íslend­ing­ur­inn sem náði að komast á topp fjallsins og fyrsta konan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert