Fundaði með forseta Alþjóðabankans

Jim Young Kim og Guðlaugur Þór.
Jim Young Kim og Guðlaugur Þór. Ljósmynd/Aðsend

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra tók í gær þátt í árlegum samráðsfundi ráðherra kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í Alþjóðabankanum með Jim Young Kim, forseta bankans.

Mikilvægi fjárhagslegrar styrkingar Alþjóðabankans var ofarlega á baugi, en ljóst þykir að þörfin fyrir aðstoð og fjármagn hafi nær aldrei verið meiri, að því er kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Utanríkisráðherra lagði áherslu á mikilvægi þess að bankinn kanni allar leiðir til fjármagnsaukningar þar sem aukin skilvirkni og aðrar innri aðgerðir væru ekki síður mikilvæg en aukning hlutafjár. Hann lagði einnig áherslu á að með styrkingu bankans þyrfti jafnframt að efla starf hans á sviði kynjajafnréttis.

Aukin samhæfing þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar var einnig til umræðu og hlutverk bankans í því samhengi. Ljóst er að samstarf Alþjóðabankans og Sameinuðu þjóðanna hefur aukist umtalsvert á síðastliðnum misserum, enda kallar breytt landslag á breytta starfshætti og aukna samvinnu allra aðila sem starfa á þessum vettvangi.

Í því samhengi lagði utanríkisráðherra áherslu á mikilvægi þess að Alþjóðabankinn nýtti skilgreinda styrkleika sína, s.s. sérfræðiþekkingu, rannsóknar- og greiningarvinnu og vogarafl hans til að koma mörgum aðilum að borðinu. Þá væri lykilatriði að vinna að uppbyggingu viðnámsþróttar og að koma í veg fyrir neyð.

Í lok fundar bauð Guðlaugur Þór forseta bankans og ráðherrum kjördæmisríkjanna til fundar á Íslandi að ári, en Norðurlöndin skiptast á að halda hinn árlega samráðsfund.

Alþjóðabankinn er ein af fjórum áherslustofnunum í fjölþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert