„Hvað lá á?“

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Eggert

„Það er sérkennilegt að ganga frá sölunni þegar þingið var í páskafríi. Hvað lá á? Af hverju var ekki hægt að taka þessa umræðu upp á þinginu,“ segir Sig­urður Ingi Jó­hanns­son, þingmaður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráðherra, um sölu ríkisins á jörð Vífilsstaða til Garðabæjar. Skrifað var und­ir­ kaupsamninginn 19. apríl síðastliðinn.  

Sigurður Ingi gerir margvíslegar athugasemdir við sölu jarðarinnar úr ríkissjóði. Hann bendir meðal annars á að engin umræða hafi farið fram í þinginu um mögulega staðsetningu fyrir framtíðarsvæði fyrir spítala. „Mér hefði þótt meiri bragur að því að það hefði verið rætt í þinginu og við skipst á skoðunum. Þetta varðar þjóðarhag og þarf ekki að vera flokkspólitískt.“    

Er hægt að kaupa aftur á sama verði?

„Felst í sölunni sá möguleiki að ríkið geti keypt landið aftur á sama kaupverði? Eða þyrfti það mögulega að kaupa jörðina aftur á uppsprengdu verði frá sveitarfélaginu þegar það þyrfti mögulega á landi að halda eins og til dæmis fyrir spítala,“ spyr Sigurður Ingi.

Hann tekur fram að hann sé fylgjandi samvinnu ríkis og sveitarfélaga um yfirráðarrétt á landi en taka þurfi tillit til verðs á því. Í því samhengi segir hann að lágt verð hafi komið honum á óvart. Hann hefur reiknað út að hekt­ar­inn hafi verið seld­ur á 2,5 millj­ón­ir í stað 20 millj­óna króna sem hann segir „mikinn mun“ en tekur fram að hann hafi ekki rýnt í það út frá gæði lands og byggingarmagns.

Efast um útsölu á lóðum í Garðabæ

„Mér finnst það koma úr hörðustu átt. Ég er sammála því og þykist vita að öll sveitarfélög séu í því að reyna að halda niðri kostnaði við húsnæði. Ég á ekki von á því að Garðabær setji lóðir á útsölu til að halda niðri húsnæðisverði í sveitarfélaginu,“ segir Sigurður Ingi, aðspurður um ummæli fjármálaráðherra, að lík­legt sé að ef land er selt á of háu verði komi það fram í háu lóðaverði.

Á myndinni má sjá það land sem Garðabær kaupir af …
Á myndinni má sjá það land sem Garðabær kaupir af ríkinu merkt með grænu striki. Svarta línan eru bæjarmörkin við Kópavog.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert