Vespa Brynjars komin í leitirnar

Brynjar Karl á vespunni sem var stolið fyrir utan Langholtsskóla.
Brynjar Karl á vespunni sem var stolið fyrir utan Langholtsskóla.

Vespan hans Brynjars Karls Birgissonar sem var stolið við Langholtsskóla á dögunum er komin í leitirnar. Faðir hans, Birgir Tryggvason, greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni. Hann vill þakka lögreglunni og öllum sem aðstoðuðu við leitina.

Í fljótu bragði virðist vespan ekki vera skemmd en Brynjar fékk hana í fermingargjöf nýverið. 

„Þetta mál er svo erfitt og sorglegt á svo margan hátt og er því hvergi nærri lokið.“ Þetta segir Birgir meðal annars í færslunni.


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert