Enginn var með allar fimm tölurnar réttar í Lottóinu í kvöld en í pottinum voru um 6,6 milljónir króna. Enginn var heldur með fjórar tölur réttar ásamt bónustölunni. Þar voru tæpar 300 þúsund krónur í pottinum.
Sömuleiðis var enginn með fimm jókertölur réttar í réttri röð. Einn var aftur á móti með fjórar tölur réttar í réttri röð og hlýtur hann 100 þúsund krónur í vinning.
Miðinn var seldur í Prinsinum í Hraunbæ í Reykjavík.
Lottótölur kvöldsins: 15-18-22-26-35.
Jókertölur kvöldsins: 4-2-6-3-9.
Bónustalan: 31.