Eldur á þaki Hagaskóla

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Slökkviliðið var kallað út um klukkan hálffjögur í dag vegna elds í Hagaskóla. Þegar slökkvilið mætti á svæðið kom í ljós að kveikt hafði verið í blaðabunka á þaki skólans.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu er hættan úr sögunni og gekk vel að slökkva eldinn. Tveir bílar voru sendir á vettvang, dælubíll og körfubíll.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert